Risa blómin í brúðkaupinu mínu

Ég og maðurinn minn Julian giftum okkur þann 18. Júlí 2026 í Hallgrímskirkju og héldum veisluna í Iðnó.

Við vorum með hvítu standandi rósirnar í Hallgrímskirkju og fluttum þær svo yfir á Iðnó svo við gætum notið þeirra bæði í athöfninni og veislunni. Bleiku bóndarósirnar hafði ég sem bakgrunn í mynda kassanum (photobooth)

Stóru hangandi rósina festum við í ljósakrónuna í miðju salarins og það kom mjög skemmtilega út.

Á myndunum að neðan má sjá stóru hangandi rósina þegar það var verið að dekka salinn

Hér voru bóndarósirnar að spóka sig áður en þær fundu sinn stað. Eins og sjá má þá eru þær glæsilegar hvort sem það er búið að stilla þeim upp eður ei

Hér er þær komnar hjá mynda kassanum

Hér má sjá mynd úr mynda kassanum af minni gull fallegu frænku Hildi

og hér Hildur ásamt sínum virðulega eiginmanni Ragga :D

Í kirkjunni vorum við með standandi hvítu rósirnar. Þær voru gífurlega fallegar og fóru vel með stórfenglegum arkitektúr kirkjunnar.

Hér er pabbi minn að spila svo fallega á gítarinn að tárin héldu áfram að streyma